Vinnustofunámskeiðið Vatnslitamálun - Málun 1 var haldin í Listasafni Árnesinga frá 10. mars til 12. maí 2016 undir handleiðslu Guðrúnar Tryggvadóttur.
Í námskeiðinu var lögð áhersla á undirstöðuatriði málunar með vatnslitum og blandaðri tækni. Kafað var í lita- og formfræðina, bæði á efnislegan og persónulegan hátt. Unnið út frá verkefnum, tilraunum og eigin hugmyndum. Lögð var áhersla á að aðstoða hvern og einn persónulega.
Námskeiðinu lauk með aukatíma þ. 12. maí sl. með yfirferð á vinnustofu Guðrúnar í Alviðru.
Helga Kristjánsdóttir sýnir afrakstur vinnu sinnar í yfirferð í síðasta tímanum á námskeiðinu.
Kerrý Reidy að vatnslita unga skjaldfléttu.
Smáhlutir málaðir á Vatnslitanámskeiðinu.
Ragnheiður Helga Jónsdóttir vatnslitar smáhluti.
Helga Hauksdóttir Nordström vatnslitar smáhluti.
Helga Hauksdóttir Nordström að vatnslita lifandi blóm.
Ragnheiður Helga Jónsdóttir að vatnslita smáblóm.
Kerrý Reidy vatnslitar smáhluti.
Guðmunda Guðmundsdóttir sýnir afrakstur vinnu sinnar í yfirferð í síðasta tímanum á námskeiðinu.
Ragnheiður Helga Jónsdóttir sýnir afrakstur vinnu sinnar í yfirferð í síðasta tímanum á námskeiðinu.
Helga Hauksdóttir Nordström sýnir afrakstur vinnu sinnar í yfirferð í síðasta tímanum á námskeiðinu.
Þátttakendur í Vatnslitanámskeiði vorannar LISTRÝMIS 2016. Frá vinstri: Helga Kristjánsdóttir, Guðmunda Guðmundsdóttir, Þórdís Krisín Öfjörð, Ragnheiður Helga Jónsdóttir og Helga Hauksdóttir Nordsröm. Fremst krýpur Guðrún Tryggvadóttir með tíkina Lottu. Á myndina vantar þrjá þátttakendur á námskeiðinu, þær Kerrý Reidy, Tiha Toleva og Andrína Guðrún Jónsdóttir.