Eftir:
  • Arndís S. Árnadóttir
  • Guðrún Arndís Tryggvadóttir
  • Sólveig Jónsdóttir

Útgáfa:
  • Listrými / Artspace


síður: 144
hæð: 27 cm
breidd: 20 cm
þykkt: 1 cm

Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar
2019

Í þessari litríku og heillandi bók leitar Guðrún A. Tryggvadóttir að lífsverki forföður síns, Ámunda Jónssonar, smiðs, listmálara og bíldskera á 18. öld. Hún endurskapar ævi hans og iðju í vatnslitamyndum í því skyni að nálgast fortíðina og lætur innsæinu eftir að kalla fram svör – í myndverkum og textum til íhugunar.

Í bókinni eru ljósmyndir af öllum þekktum verkum Ámunda auk fræðigreina eftir Arndísi S. Árnadóttur og Sólveigu Jónsdóttur sem ætlað er að auðga þessa sögu, ljá henni líf og styrkja sambandið við líf og list fortíðar. Með allt þetta í höndum er það síðan verkefni áhorfandans og lesandans að spegla sinn eigin reynsluheim í því sem hér er borið fram.

„Ég vil spegla nútímann í fornum veruleika í von um skilning á eigin tilveru,“ segir Guðrún A. Tryggvadóttir um ferðalag sitt til fortíðar. Með þeim orðum hvetur hún okkur til íhugunar um það hvernig umhverfi, uppruni og reynsla móta menn, letja eða hvetja á hverri tíð, og hvernig fjarlægðin milli okkar og Ámunda Jónssonar í árum og öldum býður okkur að skynja raunverulegt virði þess sem eitt sinn var.

Bókin kom út þ. 1. desember 2019, samhliða opnun sýningar Guðrúnar í Hallgrímskirkju.

Útgefandi: LISTRÝMI - tryggvadottir.com - Tekið er við pöntunum í síma 863 5490 eða á netfangið gudrun@tryggvadottir.com.


Hugmynd og verkefnisstjórn: Guðrún Arndís Tryggvadóttir
Hönnun bókar: Ámundi Sigurðsson
Umbrot: Einar Bergmundur og Guðrún Arndís Tryggvadóttir
Málverk á kápu: Guðrún Arndís Tryggvadóttir og Ámundi Jónsson
Kortagerð og grafík: Guðrún Arndís Tryggvadóttir og Einar Bergmundur
Ljósmyndir af verkum Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur: Guðmundur Ingólfsson
Ljósmyndir frá Þjóðminjasafni Íslands: Ívar Brynjólfsson
Aðrar ljósmyndir: Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Sólveig Jónsdóttir og Einar Bergmundur
Ritstjórn texta: Þorvaldur Kristinsson
Prentun: GuðjónÓ

Ljósmyndir af verkum Ámunda Jónssonar eru birtar með góðfúslegu leyfi Þjóðminjasafns Íslands.
Annað myndefni, málverk, teikningar, grafík og vatnslitamyndir eru eftir Guðrúnu Arndísi Tryggvadóttur.

Eftirtaldir aðilar studdu rannsókn og útgáfu bókarinnar svo og sýningu í Hallgrímskirkju:
Alþingi – Dvöl í Jónshúsi, Kaupmannahöfn
Muggur – Ferðasjóður – SÍM, Reykjavíkurborg og Myndstef
Myndlistarsjóður
Samfélagssjóður Landsbanka Íslands
Suðurprófastsdæmi
Biskupsstofa
Listvinafélag Hallgrímskirkju
Þjóðminjasafn Íslands
Miðstöð íslenskra bókmennta


Sýningar

Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar
Hallgrímskirkja

2019-12-01 - 2020-03-01
Skoða
© Guðrún Arndís Tryggvadóttir 2015