Verk enn í eigu Guðrúnar er hægt að fá leigð til sýningar eða keypt á forsendum kaupleigu, til styttri eða lengri tíma.
Sendið fyrirspurnir um verð mánaðar- eða ársleigu fyrir einstaka verk á gudrun@tryggvadottir.com.
Út er komin bók um 148 listaverk úr safneign Arion banka en í bókinni er eitt verka Guðrúnar, Skógarguðinn Pan frá árinu 1993.
More
Guðrún opnaði sýninguna INNÍ í þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi laugardaginn 13. janúar kl. 14:00. Sýningin mun standa til 24. apríl 2024. Opið er á opnunartíma þjóðgarðsmiðstöðvarinnar eða daglega frá kl. 10:00 til 16:00.
Guðrún opnar sýninguna UMBREYTING í Sundlaug Hafnar í Hornafirði, Víkurbraut 9, laugardaginn 9. desember kl. 14:00 til 16:00. Sýningin mun standa til 25. ágúst 2024 og er opin á opnunartíma sundlaugarinnar.