Guðrún opnaði sýninguna UMBREYTING / METAMORPHOSIS í Sundlaug Hafnar í Hornafirði, Víkurbraut 9, laugardaginn 9. desember síðastliðinn. Verkið er einnig hluti af sýningunni Nr. 5 Umhverfing sem opnaði þ. 28. júní 2024 og lauk þ. 25. ágúst sl. Sýning á verkinu hefur þó verið framlengd til 1. nóvember 2024 og er opin á opnunartíma sundlaugarinnar.
Bakgrunnur Guðrúnar sem frumkvöðull á sviði umhverfisfræðslu og störf hennar sem landvörður, bæði í þjóðgarðinum á Þingvöllum 2017-2021 og sem yfirlandvörður í Vatnajökulsþjóðgarði, nánar tiltekið á Breiðamerkursandi og Jökulsárlóni sumarið 2023 kemur vel fram í síðustu verkum hennar þar sem áhugi fyrir landinu og eðli hringrásar lífefna spilar stóran þátt í rannsóknar- og vinnsluaðferðum við gerð hinna stóru efniskenndu málverka.
Sundlaugar eru samkomustaðir nútímans og vatnið er Guðrúnu lífsnauðsynleg uppspretta hugmynda og endurnýjunar. Vatnið minnir okkur einnig á hverfulleikann og hinn dulda stórkostlega lífheim sem við erum hluti af. Við syndum frá fyrstu stundu, hina níu mánuði í móðurkviði og veran í vatninu er okkur því fullkomnlega eðlileg.
Guðrún syndir sjálf mikið svo hugmyndin að því að sýna einmitt í sundlaugum er ekki tilkomin af engu. Í Sundhöll Selfoss hangir einmitt verk eftir Guðrúnu, verk sem hún gaf sveitarfélaginu Árborg árið 2023. Í hinu sex fermetra stóra verki á sýningunni á Höfn tekur hún fyrir umbreytingar lífvera í tíma og hinn síbreytilega efnisheim sem umlykur okkur og við erum hluti af.
Stuðningur frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands gerði sýninguna mögulega.