Ný sýning um sögu sundlaugarinnar í Laugaskarði var opnuð þ. 17. júní 2026.
Sýningin tekur mið af því að segja söguna í stuttu máli, bæði á íslensku og ensku, stutt ljósmyndum sem valdar hafa verið til að ramma söguna inn þannig að bæði íslensku- og enskumælandi gestir geti skoðað sýninguna og náð að skilja söguna á nokkrum mínútum.
Sýningin er sett upp í tilefni 80 ára afmælis bæjarins og mun vera stöðug sýning á neðri hæð sundlaugarbyggingarinnar. Ljósmyndirnar á sýningunni eru eftir ýmsa höfunda en sýninguna hannaði Guðrún Arndís Tryggvadóttir.