Á sýningunni „Flæði – Salon-sýning af safneign“ í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, gafst tækifæri til að sjá stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur en um leið var gestum boðið að líta á bak við tjöldin í safninu. Sýningin var hengd upp í anda Salon-sýninga og tók stöðugum breytingum þá tæpa fjóra mánuði sem hún stóð yfir.
Listasafn Reykjavíkur á tvö stór málverk eftir Guðrúnu Tryggvadóttur, „Stúlku í rólu“ frá árinu 1985 og „Hetjumynd“ frá árinu 1986-87.
„Við fyrstu sýn er eins og hetjan ríði á fullri ferð. Hún er á lítilli ferkantaðri eyju (Íslandi) og þykist vera hetja, en er í rauninni að reyna að halda stellingunni á liggjandi hestinum sem spriklar til þess að reyna að koma sér aftur upp á fjóra fætur. Hetjan er fallin enda hefði hún hvort sem er ekki komist langt vegna smæðar eyjarinnar. Allt það sem er utan við mjóu ströndina á myndinni er hafið.“
Myndin var gefin út á korti í stærðinni 18,5 X 12,5 cm og sem veggmynd í sýningarskrá í stærðinni 42 X 59,4 cm.
http://listasafnreykjavikur.is/syningar/gudrun-tryggvadottir
Á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum.
Á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum. Verk Guðrúnar Hetjumynd.