Í vetur býður LISTRÝMI upp á fjögur lengri námskeið og fjögur örnámskeið á sviði myndlistar. Öll námskeiðin miða að því að veita staðgóða og praktíska fræðslu sem nýtist sem grunnur í öllum verkefnum sem snúa að myndgerð, hvort sem þau eru efnislegs eða hugmyndalegs eðlis.
Módelteiknun- og málun
Fyrri daginn verður teiknað eftir lifandi módeli, með blýanti, kolum og krít. Seinni daginn verður málað eftir módeli, með vatnsleysanlegum litum, t.d. vatnslitum og akríl, á pappír eða léreft. Stefnt að því að losa um hömlur og vinna frjálslega og persónulega með viðfangsefnið.
Tími: Helgin 18. og 19. janúar, frá kl. 10:00 -17:00 báða dagana.
Staður: Salur Rauða krossins í Hveragerði.
Þátttökugjald kr. 38.000
Masterclass – Akríl og olía
Lögð áherslu á að skoða efnafræðina, skoða kosti og galla og meta hvernig efnið hjálpar hugmyndinni sem unnið er með hverju sinni. Æfing í litablöndun og lagskiptri vinnu með akríl og olíu. Möguleikar beggja miðla kannaðir og virkjaðir. Námskeið fyrir fólk sem hefur þegar málað eitthvað en vill verða öruggara í vinnubrögðum og aukið við kunnáttu sína við að tengja efnisnotkunina betur hugmyndinni sem unnið er út frá hverju sinni. Unnið er í þremur lotum og áfram heima inn á milli.
Tími: 1., 8. og 15. febrúar 2025.
Laugardagar frá kl. 10:00 - 17:00.
Samskipti á Facebookhóp á milli vinnudaga.
Þátttökugjald kr. 48.000.
Portrait teiknun – fjarnámskeið
Fyrirkomulagið verður í formi verkefna og persónulegrar handleiðslu í gegnum Facebookhóp námskeiðsins og stendur yfir í fjórar vikur. Á milli þess sem unnið er að verkefnum vinna nemendur að því að teikna og sýna Facebook hópnum niðurstöður sínar með myndum og myndskeiðum svo allir geti verið með í þróun hjá hverjum og einum.
Tímabil: Febrúar 2025.
Þátttökugjald kr. 25.000.
Örnámskeið
Stutt fræðslunámskeið um hin ýmsu svið myndlistarinnar. Allir velkomnir.
Tími: Laugardagar 13:00 - 15:00.
Þátttökugjald: 5.000 per námskeið.
Úr huga í efni – nær og fjarnámskeið
Á þessu námskeiði einbeitum við okkur að því að brúa bilið frá huga til handar og notum til þess hin ýmsu tól og tæki myndlistarinnar, bæði huglæg og efnisleg. Hugmyndir er krufnar og hugtök eins og myndbygging, þríhljómur, kontrast, gildi og spenna verða ígrunduð og notuð meðvitað til að styrkja og miðla hugmyndum.
Tími: 1., 15. og 22. mars.
Laugardagar frá kl. 10:00 - 17:00
Samskipti á Facebookhóp á milli vinnudaga.
Þátttökugjald kr. 35.000
10% Afsláttur er veittur ef fleiri námskeið en eitt er sótt.
Kennari er Guðrún Arndís Tryggvadóttir. Skráning á gudrun@tryggvadottir.com og frekari upplýsingar í síma 863 5490.
Námskeiðin eru haldin á vinnustofunni að Sóltuni 9 nema annað sé tekið fram.
LISTRÝMI er útgáfu- og fræðslufélag Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur – gudrun@tryggvadottir.com – tryggvadottir.com.
LISTRÝMI – Sími: 863 5490 – Sóltúni 9 – 800 Selfoss