„Ég kenni þér ekki að herma eftir mér heldur kenni ég þér að finna þína eigin leið að persónulegu myndmáli“
Allir velkomnir – allir geta teiknað og málað!
MÓDELTEIKNUN – GRUNNUR ALLS
Á þessu námskeiði er áhersla lögð á að módelteiknun skiljist sem sá grunnur fyrir alla listsköpun, sem hún er. Teiknað verður eftir lifandi módeli í allskonar stellingum, í allskonar efni, á allskonar hátt. Aðaláhersla verður lögð á gleði, flæði, tilgerðarleysi og persónulega tjáningu með það að markmiði að skynja mannslíkamann, sem endurspeglar auðvitað öll þrívíð form í þessum heimi.
Tímar:
Laugardagana 5., 12., 19. og 26. september frá kl. 12:00 - 16:00.
Samtals 21 kennslustund.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 12.
Þátttökugjald: 68.000 isk.
Efni innifalið.
HUGMYND VERÐUR MYND – HVAÐ VIL ÉG SEGJA?
Námskeið fyrir fólk á öllum aldri, alla sem fást eitthvað við myndlist og hafa einhverja reynslu en hafa kannski rekið sig á að þróun hugmyndar að fullbúinni mynd þurfi frekari pælinga við. Ef þú hefur áhuga á að læra meira um hvernig fanga má hugmyndir og þroska áfram í myndmáli þá ertu velkomin/n í þetta námskeið.
Unnið er heima á milli tíma en það er nauðsynlegur hluti þróunarferilsins og samskipti verða á milli leiðbeinanda og þátttakenda allan tímann eða allan októbermánuð.
Tímar:
Fimmtudagarnir 1., 8., 15. og 29. október frá kl. 17:30 - 20:30.
Samtals 16 kennslustundir.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12
Þátttökugjald: 54.000 isk.
LISTMÁLUN – AÐ LÁTA EFNIÐ TALA
Á námskeiðinu verður farið í hinar ýmsu tækniaðferðir og efnablöndun í olíumálun sem og aðferðir við undirbúning, undirmálun með akrýl, lagskipta málun, pastos málun, úðamálun (spray) og fleiri aðferðir og stíla.
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem hefur þegar snert eitthvað á olíulitum og akrýl en vill auka við kunnáttu sína og tengja efnisnotkunina betur hugmyndinni sem unnið er út frá hverju sinni. Nemendur komi með eigin liti, pensla og striga/plötur en einnig verða litir blandaðir (rifnir) á staðnum og góð ráð gefin með val á efnum.
Tímar:
Laugardagarnir 17., 24., 31. október og 7. nóvember frá kl. 12:00 - 16:00. Samtals 21 kennslustund.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12
Þátttökugjald: 68.000 isk.
VATNSLITAMÁLUN – vatn, hugur, litur
Galdurinn að mála með vatnslitum. Kafað verður í lita- og formfræðina, á efnislegan, táknrænan og persónulegan hátt. Unnið út frá verkefnum og eigin hugmyndum. Nemendur komi með eigin liti og pensla en gjarnan er ráðlegt með kaup á efni fyrir þá sem vilja.
Tímar:
Fimmtudagarnir 5., 12., 19. og 26. nóvember frá kl. 17:30 - 20:30.
Samtals 16 kennslustundir.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12
Þátttökugjald: 42.000 isk.
..........
Leiðbeinandi: Guðrún Arndís Tryggvadóttir
Guðrún Arndís Tryggvadóttir nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París í Frakklandi og Akademie der Bildenden Künste í München í Þýskalandi. Hún stofnaði listaskólann RÝMI, hönnunarstofu og umhverfisvefinn Náttúran.is og hefur rekið LISTRÝMI sl. fimmtán ár, fyrst innan veggja Listasafns Árnesinga en síðan á eigin vinnustofum.
Guðrún elskar að kenna meðfram myndlistarstarfi sínu en námskeiðin fara fram í rúmgóðri vinnustofu Guðrúnar að Mánamörk 3-5 í Hveragerði.
Sjá nánar um feril og verk Guðrúnar á https://tryggvadottir.com/is/
Skráning á gudrun@tryggvadottir.com.
Flestir fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja félagsmenn til þátttöku í námskeiðum en nánari upplýsingar um slík réttindi fást hjá viðkomandi stéttarfélagi.
10% afsl. ef fleiri námskeið en eitt er sótt á haustönn.