Í þessari litríku og heillandi bók leitar Guðrún A. Tryggvadóttir að lífsverki forföður síns, Ámunda Jónssonar, smiðs, listmálara og bíldskera á 18. öld. Hún endurskapar ævi hans og iðju í vatnslitamyndum í því skyni að nálgast fortíðina og lætur innsæinu eftir að kalla fram svör – í myndverkum og textum til íhugunar.
Í bókinni eru ljósmyndir af öllum þekktum verkum Ámunda auk fræðigreina eftir Arndísi S. Árnadóttur og Sólveigu Jónsdóttur sem ætlað er að auðga þessa sögu, ljá henni líf og styrkja sambandið við líf og list fortíðar. Með allt þetta í höndum er það síðan verkefni áhorfandans og lesandans að spegla sinn eigin reynsluheim í því sem hér er borið fram.
„Ég vil spegla nútímann í fornum veruleika í von um skilning á eigin tilveru,“ segir Guðrún A. Tryggvadóttir um ferðalag sitt til fortíðar. Með þeim orðum hvetur hún okkur til íhugunar um það hvernig umhverfi, uppruni og reynsla móta menn, letja eða hvetja á hverri tíð, og hvernig fjarlægðin milli okkar og Ámunda Jónssonar í árum og öldum býður okkur að skynja raunverulegt virði þess sem eitt sinn var.
Bókin kom út þ. 1. desember 2019, samhliða opnun sýningar Guðrúnar í Hallgrímskirkju.
Útgefandi: LISTRÝMI - tryggvadottir.com - Tekið er við pöntunum í síma 863 5490 eða á netfangið gudrun@tryggvadottir.com.
Umfjallanir um bókina Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar í fjölmiðlum:
2020 05.02. Morgunblaðið - Samtal við Söguna – grein Steinunn Jóhannesdóttir. https://www.mbl.is/greinasafn/innskraning/...
2020 17.02. ruv.is - Leitað að lífsverki – grein og viðtal Jórunn Sigurðardóttir. https://www.ruv.is/frett/leitad-ad-lifsverki
2020 04.01. Morgunblaðið - Lífsverk Ámunda smiðs í samtímanum – Einar Falur Ingólfsson. https://www.mbl.is/greinasafn/innskraning/...
2020 02.01. Morgunblaðið - Bækur ársins – Árni Matthíasson. https://www.mbl.is/greinasafn/innskraning/...